Hvað er fjarþjálfun

Fjarþjálfun er þjálfun sem fer að mestu leyti fram í gegnum tölvu. Iðkandinn fær aðgang að innra neti sem inniheldur það plan sem hann á að fara eftir, inn á innra netinu er síðan ætlast til þess að iðkandi skrái árangurinn sinn inn. Þjálfari fer síðan yfir þær niðurstöður vikulega og sendir nokkrar línur hvar er hægt að bæta og hvað fór vel.

Hverjum hentar að vera í fjarþjálfun?

  • Fjarþjálfun hentar þeim sem eru með eitthvað form af sálfsaga og eru með smá öryggi í ræktinni upp á það að geta beitt líkamanum sínum rétt.
  • Hentar afar vel afreksíþróttafólki sem er að sækjast eftir því að verða betri í sinni íþrótt með því að auka snerpu og liðleika. Aukin snerpa og liðleiki bætir hreyfigetu og kraft og því verður iðkandinn betri í tiltekinni íþrótt.
  • Einstaklingar sem vilja æfa heima hafa líka gott að því að vera í fjarþjálfun þar sem það getur verið erfitt að finna kraftinn til þess að nenna að æfa heima og þá er gott að hafa einhvern sem er að fylgjast með manni

Við bjóðum upp á Fjórar leiðir þegar að það kemur að fjarþjálfun

Leið I

  • Sérsniðið 4 vikna Plan með æfingarmyndböndum til útskýringa
    • Þú velur hversu marga daga þú vilt æfa og við ákveðum áherslur saman
  • Eftirfylgni
  • Fræðslumyndbönd sem koma vikulega inn á síðuna – KEMUR SEINNA
    • 15.900 kr

Leið II

  • Sérsniðið 4 vikna Plan með æfingarmyndböndum til útskýringa
    • Þú velur hversu marga daga þú vilt æfa og við ákveðum áherslur saman
  • Eftirfylgni
  • Fræðslumyndbönd sem koma vikulega inn á síðuna
  • 1 vikulegt 10-15 mínútna símtal til að fara yfir stöðuna
    • 18.900 kr

Leið III

  • Sérsniðið 4 vikna Plan með æfingarmyndböndum til útskýringa
    • Þú velur hversu marga daga þú vilt æfa og við ákveðum áherslur saman
  • Eftirfylgni
  • Fræðslumyndbönd sem koma vikulega inn á síðuna
  • 1klt æfing með þjálfara til að fara yfir æfingar
    • 25.900 kr

Leið IIII

  • Sérsniðið matarplan
  • Eftirfylgni 
    • 10.000 kr