Ég Kynntist Pálínu á frekar erfiðum tíma í mínu lífi, ég var að ganga í gegnum stórar breytingar sem höfðu mikil áhrif á mig andlega. Mig hafði í langan tíma dreymt um að keppa í fitness og safnaði ég loksins kjarki í að fara og finna mér þjálfara sem myndi geta hjálpað mér að láta drauminn minn verða að veruleika. Ég vissi að því að pálína var búin að vera að þjálfa mikið af fólki fyrir fitness keppnir og að hún hafi sjálf verið búin að keppa oft áður með mjög góðum árangri þannig að ég ákvað að hafa sambandi við hana, sú ákvörðun breytti lífi mínu til hins betra, mér datt ekki í hug hvað hún ætti eftir að hafa mikil áhrif á mig á mjög góðan hátt. Hún hjálpaði mér ekki einingis að komast í besta form lífs míns heldur hjálpaði mér hún líka ótrúlega mikið andlega, það var oft eins og að komast í sálfræði tíma að fá að spjalla við hana um lífið og tilveruna. Hún er bara svo einstaklega hlý og með svo fallega sýn á lífið. Ég mun alla ævi vera ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið hana inní mitt líf og er það henni að þakka hvenig ég horfi á líkamlega og andlega heilsu í dag.