Ég var í þjálfun hjá pálínu í rúm 2 ár og get ég hiklaust mælt með henni. Ekki er hún bara góður einkaþjálfari og góð manneskja heldur er hún alveg svakalega fróð um marga hluti sem ekki allir einkaþjálfarar vita eða taka sér tíma til að setja sig inn í fyrir sína kúnna. hún er víðlesin um bólgur ásamt mörgu öðru. Hún hefur brennandi áhuga á því að bæta lífsgæði sinna kúnna og er stöðugt að afla sér meiri þekkingar til að bæta sína þjónustu og hver og einn skiptir hana miklu máli. Hún hjálpar manni að losa um bólgur í líkamanum sé þess óskað sem mér fannst frábært . Hún leggur mikla áheirslu á vellíðan meðan á þjálfun stendur ekki bara líkamlegan heldur einnig andlega og ber hag hvers einstaklings fyrir hendi. Hún gerði mörg prógröm fyrir mig og sá um næringu og mælingar og hélt vel utan um mig allan tíman. Ég náði frábærum árangi með hjálp hennar og mun alltaf búa að því.